|
Heimasíða Jóhönnu Margrétar "hávaxin og grönn eins og mamma!" |
|
08.05.2012 22:47![]() Sælinú gott fólk! Í dag á systir mín, hún Freydís Ósk afmæli! Hún er 1 árs í dag!! Við systurnar erum heima í dag af því að við erum lasnar, Freydís er búin að vera með hita síðan í síðustu viku en er að jafna sig í dag og ég fékk hita í gær. Freydís er samt rosalega dugleg þó að hún sé búin að vera með hita. Hún er farin að standa alveg sjálf, án þess að halda sér í. Við ætlum að halda fyrir hana afmælisveislu um næstu helgi. Ég sagði mömmu að við ættum að baka handa henni jólasveinaköku, hún er svona svört. En núna er ég farin að sofa, mér var illt allstaðar og ég fékk stíl svo að mér liði betur. Freydís ætlar að fara með pabba í bæinn í fyrramálið og fara til dagforeldranna sinna en við mamma ætlum að hafa það notalegt á morgun. Vonandi líður mér betur þá. Núna bið ég að heilsa öllum í bili, góða nótt, Jóhanna Margrét. Skrifað af mömmu 09.04.2012 22:27![]() Sælinú gott fólk og gleðilega páska!!! Þá er það nýjasti fréttapakkinn af okkur systrunum, það er nú ýmislegt að frétta! Freydís Ósk fór í MRI myndatökuna 29. mars. Þar gekk allt mjög vel, mamma fór með henni, þær mættu kl. 08:30 um morguninn og fengu að fara heim um kl. 14. Svo sóttu þær mig á leikskólann og við fórum og heimsóttum ömmu Freydísi og þar byrjaði nú ævintýrið. Rétt áður en pabbi kom þangað eftir vinnu þá sat Freydís Ósk á gólfinu með mér í eldhúsinu hennar ömmu Freydísar og var að leika sér að dótinu í skúffunni hennar ömmu. Svo var hún að teyja sig í eitthvað og datt á hliðina og böglaði eitthvað undir sér handlegginn þannig að hún fór að gráta. Mamma tók hana upp en systa hætti ekki að gráta og mömmu fannst hún eitthvað skrítin í hendinni. Hún hringdi í pabba og hann var á leiðinni og þegar hann kom þá ákváðu þau að fara með systu á sjúkrahúsið og láta skoða handlegginn hennar. Ég varð eftir hjá ömmu Freydísi. Það tók víst dálítinn tíma að bíða á slysadeildinni þannig að mamma hringdi í Hörpu frænku og bað hana að koma til okkar ömmu og taka mig með sér. Þau þurftu að bíða dálitla stund á slysó og svo þurfti að taka röntgen mynd af handleggnum hennar Freydísar og læknirinn sagði að það væri einhver púði færður úr stað í olnboganum og setti systu í gifs frá úlnlið upp að öxl. Daginn eftir fórum við svo öll til Reykjavíkur. Það fannst mér skemmtilegt. Ég var að spyrja mömmu á leiðinni hvað gatan héti sem við værum að keyra á. Hún sagði að þetta héti "þjóðvegur 1", það fannst mér alveg ómögulegt og hló bara að þessu. Á leiðinni suður keyrðum við fram hjá Lilju, vinkonu mömmu, uppi á Holtavörðuheiði en hún var stopp þar. Í Reykjavík gistum við hjá Lillu frænku. Hún er dóttir hennar Rúnu sem að er systir ömmu Dengu. Við fórum í IKEA og þar fékk ég að leika mér í boltum og svo á sunnudeginum fórum við í fermingarveislu. Á mánudeginum keyrðum við svo heim. Freydís Ósk átti svolítið bágt þessa daga, hún svaf ílla á nóttunni og hóstaði mikið. Mamma sagði að hún ætlaði að fá lækninn sem að myndi skoða handlegginn hennar á þriðjudeginum til að hlusta hana líka. Þegar hún fór svo með Freydísi til læknis á þriðjudeginum til að skoða handlegginn hennar þá var danssýning í leikskólanum hjá mér. Við erum búin að vera að læra Kúbverska dansa hjá manni sem heitir Camilo. Mamma var með Freydísi Ósk á sjúkrahúsinu og pabbi komst ekki úr vinnunni sinni þannig að þau fengu Hörpu frænku til að koma og sjá mig dansa. Þessi heimsókn mömmu og Freydísar á sjúkrahúsið tók líka langan tíma. Tíminn var klukkan 1 og þær voru ekki búnar fyrr en 4. Þá var búið að taka gifsið af systu og læknir búinn að koma og skoða handlegginn og svo þurftu þær að bíða eftir því að það kæmi læknir af barnadeildinni til að hlusta Freydísi. Það var hann Gunnar sem kom og hann vildi líka fá röntgen mynd af lungunum hennar systu og svo sagði hann að systa þyrfti að fá púst til að líða betur. Hann tók líka sýni úr hálsinum hennar sem að við erum að bíða eftir að heyra frá honum með hvort að hafi ekki verið í lagi með. Okkur finnst nú reyndar að pústið hafi ekki gert mikið fyrir systu, En í gær var páskadagur!!!! Svo var líka annað sem gerðist í gær. Við fórum í skírnarveislu því að það var verið að skíra litla frænda minn, bróður hennar Írisar Hrannar. Svo átti amma Freydís afmæli í gær þannig að það var nóg að gera. Við skruppum í heimsókn til hennar þegar við vorum búin í skírnarveislunni en amma var ekki með neina veislu, hún var að fara í mat til Habbýjar frænku. Á morgun er svo frí í leikskólanum mínum. Konurnar ætla að fara á námskeið þannig að við pabbi ætlum að brasa á morgun á meðan að mamma fer í vinnuna sína og Freydís Ósk til dagforeldranna. En þetta eru svona helstu fréttirnar. Jón Reynir læknir hringdi líka í mömmu og sagði henni að blóðprufan sem að Freydís fór í þegar hún kom í MRI myndatökuna hefði komið vel út nema að hún væri svona í neðri mörkunum með flogalyfið í blóðinu þannig að það ætti að auka skammtinn hennar úr 1 töflu á morgnana í eina og hálfa en áfram að taka 1 á kvöldin. Hún á svo að koma aftur í blóðprufu á föstudaginn til að sjá hvort að þetta er ekki betra svona. Svo eitt enn... í gær þá var ég að strjúka bumbunni hennar mömmu og þá kom svona kippur og litla barnið sem er í maganum hennar mömmu sparkaði í mig! En núna er ég sem sagt farin að sofa svo að við pabbi getum brasað á morgun. Ég fæ mömmu til að skrifa meira seinna. Þið skulið endilega skoða myndirnar í myndaalbúminu mínu. Pabbi tók fullt af myndum af mér og systu með páskaeggin okkar og eins í skírnarveislunni. Ég bið að heilsa í bili, Jóhanna Margrét. Skrifað af mömmu 12.03.2012 15:27![]() Sælinú gott fólk. Þá eru það nýjustu fréttir af okkur systrunum. Fyrst af mér... ég er lasin heima með mömmu og mamma er líka lasin! Það byrjaði með því að pabbi fékk niður- og uppgang á föstudaginn, svo fékk mamma þetta á laugardagskvöldið og svo ég í nótt! Pabbi fékk líka hita og beinverki en mamma slapp við það. Ég er með aðeins hita, 38,3° Og þá eru það fréttir af Freydísi. Hún fékk annað flogakast á fimmtudaginn þegar hún var hjá dagforeldrunum. Þegar þetta var búið þá fengu þau öll að fara heim og Jón Reynir hringdi svo í mömmu á föstudeginum og sagði að línuritið hefði komið vel út. Hann var búin að tala við sérfræðing í Reykjavík og hann sagði að þetta hefði komið vel út, verið eðlilegt. Í dag hringdi svo Jón Reynir aftur í mömmu og hann var þá búinn að tala við Bettý sem vinnur á barnadeildinni og það er líklegast að Freydís fái að fara í eitthvað sem heitir segulómun (MRI) 29. mars. Bettý á samt eftir að hringja í mömmu til að staðfesta þetta þegar hún er búin að skoða tímabókina betur. Þetta er gert til að læknirinn geti verið viss um að það sé ekkert annað sem er að valda flogaköstunum. Ég er líka búin að fara í svona, það þarf að svæfa mann svo að maður liggi alveg kjurr og svo fer maður inn í svona stórt tæki sem að tekur myndir af höfðinu manns. Þegar ég fór í þetta þá vaknaði ég reyndar í miðri myndatöku þannig að það þurfti að stökkva til og gefa mér meira svefnlyf. Læknarnir gerðu ekki alveg ráð fyrir því að meðalið sem ég var á til að stoppa flogin hefði þessi áhrif á svæfinguna, að það þurfti að gefa mér auka skammt af svefnmeðali til að ég héldist sofandi. Mamma og pabbi verða að muna að tala um þetta við læknana þegar þar að kemur því að Freydís á líka að taka þetta sama lyf og ég fékk. Hún á að byrja strax í dag og fá 1/2 töflu tvisvar á dag í eina viku og svo heila töflu tvisvar á dag eftir það. Þegar hún kemur svo til að fara í myndatökuna þá á að taka blóðprufur til að sjá hvort að meðalið er að virka vel. En stóru góðu fréttirnar eru þær að Freydís er orðin svo dugleg, hún stóð upp alveg sjálf við stofuborðið í gær!!! En þá eru allar fréttirnar komnar af okkur í bili, ég bið að heilsa og fæ mömmu til að skrifa aftur fljótlega. Bestu kveðjur, Jóhanna Margrét. Skrifað af mömmu 05.03.2012 20:41![]() Sælinú gott fólk. Þá er það nýjasti fréttapakkinn af mér og systur minni... eða aðallega af systu. Hún er orðin svo dugleg, hún er farin að skríða, En svo eru það leiðinlegu fréttirnar. En það er allt í lagi með Freydísi núna, hún fékk að koma heim seinni partinn í dag og svo á bara að sjá aðeins til og bíða og sjá hvort að hún fær svona kast aftur. Það verður ekkert meira gert að sinni og Freydís fer aftur til dagforeldranna í fyrramálið. Annars er allt gott að frétta af mér, ég er voða dugleg á leikskólanum og hér heima. Þetta voru helstu fréttirnar í bili og ég bið mömmu að skrifa meira seinna. Bestu kveðjur, Jóhanna Margrét. Skrifað af mömmu 22.02.2012 17:20![]() Sælinú gott fólk! Í dag er öskudagur!!! Það var rosa gaman í dag, við heimsóttum fyrirtæki hérna á Svalbarðseyri og sungum og ég kom heim með góðgæti, harðfisk, pizzu, svala og kókómjólk og pínulítið nammi. Allt rosa gott. Núna er ég að bíða eftir því að pabbi komi heim úr vinnunni þannig að við getum borðað pizzuna mína. Núna bið ég að heilsa í bili, Jóhanna Margrét. Skrifað af mömmu 08.02.2012 20:32![]() Sælinú gott fólk! Við Freydís Ósk eignuðumst lítinn frænda í dag!!! Mamma segir að hann sé voða sætur, ég fæ að heimsækja hann um helgina en hann fær að fara heim á morgun með mömmu sinni og pabba. Hún Íris Hrönn frænka mín er sem sagt orðin "stóra systir" alveg eins og ég! Bestu kveðjur í bili, Jóhanna Margrét. Skrifað af mömmu 29.01.2012 21:00![]() Sælinú gott fólk! Nýjustu fréttir af okkur systrunum. Við vorum báðar heima lasnar á miðvikudaginn og fimmtudaginn var. Um helgina vorum við mamma svo rosalega duglegar, við gerðum breytingar í herberginu mínu! Svo gerðist annað merkilegt í gær.... systa fékk fyrstu tönnina sína, Á morgun er frí í leikskólanum mínum því að konurnar ætla að hafa fund og skipuleggja hjá sér. Við mamma og systa ætlum því að gera eitthvað skemmtilegt. Núna er ég farin að sofa þannig að ég bið að heilsa í bili og við spjöllum meira seinna. Bestu kveðjur, Jóhanna Margrét. Skrifað af mömmu 01.01.2012 00:01![]() Kæru ættingjar og vinir! Við systurnar sendum okkar bestu jóla og nýárskveðjur til ykkar allra. Við þurftum nú samt að skreppa með Freydísi Ósk á slysadeildina á fimmtudaginn. Í kvöld borðuðum við hjá ömmu Dengu með Kára og Írisi Hrönn og fórum síðan og horfðum á flugeldasýninguna á brennunni. Svo komum við heim til okkar til að sjá flugeldana þar á miðnætti, ég var búin að fá mér smá blund. Ég er ennþá að horfa þó að mamma sé að skrifa fyrir mig og pabbi sé að tala við Hörpu frænku í símann..... flugeldarnir eru rosalegir!!!!! En sem sagt, bestu kveðjur til allra frá okkur systrunum og mömmu og pabba. Við sendum fleiri fréttir seinna. Þið skulið endilega skoða myndirnar í albúminu mínu, þar eru nokkrar frá jólaballinu á leikskólanum mínum og svo myndir sem teknar voru á aðfangadagskvöld. Bestu kveðjur og góða nótt, Jóhanna Margrét. ![]() Skrifað af mömmu 05.11.2011 17:23![]() Sælinú gott fólk! Smá lína til að segja nýjustu fréttir af okkur systrunum. Ég er orðin svo stór stelpa, Ég er ofsalega stolt af systur minni þó að ég verði sennilega að viðurkenna að ég er pínu öfundsjúk stundum. Ég átti svolítið bágt um daginn... ég sagði mömmu að ég vildi ekki hafa litlu hjá mér, hún ætti bara að fara aftur inn í magann á mömmu. Mamma sagði að hún væri orðin of stór, það væri ekki pláss þar inni lengur og þá vildi ég bara henda henni, það gæti bara einhver kona komið og látið hana hætta að gráta. En svo þegar litla systir vaknaði eftir blundinn sinn og ég sá hana þá sá ég strax að án hennar gæti ég ekki verið. Mér þykir ofsalega vænt um hana Ég er líka mjög dugleg stelpa að hjálpa mömmu, Freydís Ósk var lasin um daginn og hún gubbaði og þá var ég dugleg að ná í taubleyju fyrir mömmu til að þurrka upp gubbið. Ég er semsagt mjög dugleg stelpa og ég læt mömmu og pabba reglulega heyra það. Það eru nokkrar nýjar myndir af okkur systrunum í albúminu mínu sem þið skulið endilega skoða. Ég bið að heilsa í bili og við spjöllum meira seinna. Bestu kveðjur, Jóhanna Margrét Skrifað af mömmu 12.09.2011 00:45![]() Jæja gott fólk, þá er búið að skíra litlu systur..... hún heitir Freydís Ósk! Laugardagurinn var rosalega skemmtilegur Það voru teknar margar myndir og þið getið skoðað þær í albúminu mínu. Ég bið að heilsa í bili, Jóhanna Margrét. Skrifað af mömmu 05.09.2011 11:14![]() Jæja þá er ég búin að halda upp á afmælið mitt, þið getið skoðað myndirnar í albúminu mínu. Það var mjög gaman á leikskólanum, ég fékk að gefa öllum ís og kleinur og ég fékk kórónu. Síðan er ég búin að heimsækja Gróu á sjúkrahúsið, hún var að vigta mig og mæla hæðina mína. Ég er 10,6 kg sem að Gróu fannst svolítið lítið en góðu fréttirnar fyrir mig eru þær að þetta þýðir að ég má fá allt það gúmmulaði sem að ég vil..... Svo eru það stóru fréttirnar, mamma og pabbi eru búin að ákveða skírnardag fyrir litlu systur. Litla systa er mjög dugleg, hún lá í sófanum hjá ömmu Dengu á föstudaginn var, reyndar með púða undir sér. Amma sat hjá henni og hún horfði á systu reysa sig upp! En þá eru fréttirnar komnar í bili, ég er á leikskólanum og það er sulludagur í dag! Ég bið mömmu að skrifa aftur þegar við erum búin að skíra litlu systu þannig að ég geti sagt ykkur fréttir af því. Bestu kveðjur í bili, Jóhanna Margrét. Skrifað af mömmu 23.08.2011 00:00![]() Sælt veri fólkið. Þá er loksins komið að því, ég á afmæli í dag og ég er 3ja ára. Nú er líka sumarfríið búið og ég er byrjuð aftur á leikskólanum. Við gerðum alls konar hluti í fríinu og vorum lítið heima þannig að það var ekki mikill tími til að skrifa á síðuna mína en nú er að komast ró aftur á hlutina og þá fer ég nú að geta látið mömmu skrifa meira. Eins og ég sagði fórum við út um allt og þið getið skoðað fullt af myndum í myndaalbúminu mínu. Síðasta daginn í leikskólanum fyrir sumarfrí var hátíð í skógarreitnum fyrir ofan þorpið mitt og við fengum að fara á hestbak! Seinna fórum við og skoðuðum hús með fullt af flugvélum, þar var meira að segja ein með stöfunum mínum á.... pabbi tók mynd af mér við hana. Við fórum líka í sumarbústað og svo fórum við mamma og Lilja vinkona hennar og skoðuðum fullt af skipum á Húsavík. En það eru líka fleiri fréttir af mér, ég er hætt á öllum meðölum! Annars er ég svolítið í því að passa mömmu mína þessa dagana, hún er búin að vera lasin..... hún er með nýrnasteina!! Ég hef svolitlar áhyggjur af þessu og vakna stundum á nóttunni og þarf þá að vera viss um að mamma fari ekki neitt, ég læt hana lofa mér að hún fari ekkert út og ekkert í bílinn og þá get ég farið aftur að sofa. Ég er líka búin að vera pínu lasin, ég var heima alla síðustu viku með hita og kvef og svo er litla systa líka með kvef núna. Mér finnst hún skemmtileg, hún talar við mig og brosir mikið. Annars eru mamma og pabbi núna á fullu að reyna að finna nafn á litlu systu, ég skil ekkert í þessu... En sem sagt, ég á afmæli í dag!!! Það verða líka örugglega teknar margar myndir í veislunni minni og þið fáið að sjá þær hérna í myndaalbúminu mínu. Núna bið ég að heilsa í bili og ég fæ mömmu til að skrifa meira þegar ég er búin að halda upp á afmælið mitt. Bestu kveðjur í bili, Jóhanna Margrét. Skrifað af mömmu 30.05.2011 12:33![]() Sælinú gott fólk. Hjá okkur er allt gott að frétta, ég fór með leikskólanum í sauðburðarferð á föstudaginn, pabbi kom með og tók myndir. Við fórum á bæ sem heitir Þverá og er í Dalsmynni. Mér finnst gaman að skoða lömbin, þið getið sé nokkrar myndir inni í albúminu mínu. Litla systir mín er líka hress og kát. Við litla systir erum mjög góðar vinkonur, mér finnst hún ósköp sæt og góð, Annars eru líka fleiri góðar fréttir af mér, mamma og pabbi eru búin að tala við Gróu og fá niðurstöðu úr heilalínuritinu mínu. Það kom mjög vel út þannig að mamma og pabbi fengu fyirmæli um það hvernig trappa mætti niður meðalagjöfina mína og ég verð hætt á meðalinu áður en ég verð 3ja ára Jæja, núna fer að koma tími fyrir mömmu til að gefa litlu systur að drekka, ég er líka alveg að sofna á leikskólanum, komin inn í hvíldina eftir hádegismatinn Bestu kveðjur, Jóhanna Margrét. Skrifað af mömmu 08.05.2011 20:03Ég er orðin stóra systir!Halló, nú er sko margt skrýtið búið að gerast! Mamma og pabbi spurðu Hörpu frænku hvort að hún myndi geta passað mig í eina nótt því að þau ætluðu að fara út að borða og hafa kósý stund heima og sofa út áður en litla barnið kæmi í heiminn. Það var allt i lagi að fara til Hörpu frænku og fá að gista ennnnnnnn það skrýtna var að mamma og pabbi fóru út að borða og höfðu það gott áður en þau fóru að sófa en svo vaknaði mamma með verki um 3 leytið i nótt. Hún vakti pabba og sagði honum að nú væri eitthvað að gerast, pabbi sagði henni að hringja uppá FSA og þar sagði konan mömmu bara að koma svo að það væri hægt að skoða hana og þau fóru ekkert heim aftur þannig að þau gátu ekki sofið meira út. Bumbubúinn var að fara að koma i heiminn þannig að þá fór allt i gang, Rakel ljósmóðir sem skoðaði mömmu hringdi þá í Habbýu frænku og sagði henni að koma því að hún ætlaði að taka á móti. Kl 10:36 í morgun kom í heiminn þessi líka gullfallega stelpa, hún var 3745gr og 52 sm að lengd svo nú er ég orðin STÓRA SYSTIR Skrifað af Pabba 25.04.2011 10:33![]() Halló öll saman, það eru páskar Ég fékk risastórt páskaegg með fullt af nammi í! Þið getið skoðað myndir af mér með páskaeggið mitt í myndaalbúminu mínu. Hjá okkur er annars allt gott að frétta, ég fór í heilalínurit um daginn og ég var svo dugleg!!! Nú erum við bara að bíða eftir því að læknarnir í Reykjavík séu búnir að skoða línuritið mitt og hafi svo samband við Gróu, þá komumst við að því hvort að ég get farið að hætta að taka flogameðalið mitt. Ég er líka farin að vera svo dugleg að sofa í herberginu mínu, Svo erum við bara að bíða eftir því að litla barnið komi út úr maganum á mömmu. Mamma er hætt að vinna og er bara heima að undirbúa fyrir komu litla barnsins. Ég er búin að segja Hörpu frænku og Habbý frænku að litla barnið komi á föstudaginn en við verðum bara að bíða og sjá til. Við erum búin að gera helling um páskana, á föstudaginn bauð ég ömmu Freydísi og ömmu Dengu í kaffi. Við mamma bökuðum stóra köku sem að ég skreytti með jarðarberjum og smartís. Svo gerðum við líka vöflur. Á laugardaginn hringdi ég svo í Hörpu frænku og hún og Ævarr komu líka í kaffi. Þá kom pabbi líka heim með nýju "frystiskistuna" okkar heim. Í gær fórum við svo í hádegismat til ömmu Dengu og borðuðum með henni og Kára, Ástu og Írisi Hrönn. Svo finnst mömmu svo findið að ég er farin að kalla hana "litla nashyrninginn minn", mér finnst það líka skemmtilegt. En núna er ég að borða snakk og ætla svo að fá mér smá páskaegg á eftir. Ég segi fleiri fréttir seinna. Bestu kveðjur í bili, Jóhanna Margrét. Skrifað af mömmu |
TenglarEg er sætust Nafn: Jóhanna Margrét HaraldsdóttirTölvupóstfang: laugartun19@internet.isAfmælisdagur: 23.08.08Heimilisfang: Laugartun 19eStaðsetning: 601 AkureyriHeimasími: 461-2006Faðir: Haraldur Bergur ÆvarssonMóðir: Elín Svava Ingvarsdóttirclockhere Flettingar í dag: 2 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 9 Gestir í gær: 6 Samtals flettingar: 40088 Samtals gestir: 13125 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:38:30 |